Á tjaldsvæðinu geta náttúruelskendur og þeir ævintýragjörnu sem vilja vera frjálsir eins og fuglinn haft möguleika á að tjalda við jaðar hverasvæðisins með Geysi og Strokk í nokkurra metra fjarlægð. Látið hverinn vekja sig á morgnana eða svæfa sig á kvöldin. Tjaldsvæðið er í göngufæri við hverasvæðið, Haukadalsskóg, Hótel Geysi og veitingahúsið/ísbúðina á Geysir Glímu.
Í þjónustuhúsinu er aðstaða fyrir gæslu, sturtur, góð salernisaðstaða, salerni fyrir fatlaða og þvottaaðstaða. Leiktæki eru fyrir börnin meðal annars aparóla og fótboltamörk. Rafmagn er á svæðinu.
Fjölbreytt afþreying er í boði á Geysissvæðinu, sjá hér
Tjaldsvæðinu er skipt upp þannig að hluti þess sem liggur að hverasvæðinu er eingöngu fyrir tjöld.
Húsbílar, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og aðrir vagnar tjalda á sérsvæði þar sem einnig er boðið upp á rafmagn.
Njótið sumarsins og fallegrar náttúru Íslands
Verðlisti 2019
Verð fyrir fullorðna: 1.800 kr
Verð fyrir börn (8 – 15 ára): 500 kr
Verð fyrir börn (0-7 ára): frítt
Eldri borgarar og öryrkjar: 1000 kr
Rafmagn: 900 kr fyrir 24 klst
Sturtur: 500 kr
Leiga á Rafmagnssnúru: 5.000 kr (endurgreitt þegar snúru er skilað)
Greitt er fyrir tjaldstæðið hjá tjaldstæðaverði sem er staðsettur í þjónustuhúsnæðinu á tjaldsvæðinu.
Opnunartími 2019
15. maí - 15. september