Öll herbergin eru með kaffivél og kaffi frá Sjöstrand. Kaffið, sem er einstaklega bragðgott, er umhverfisvænt 100 prósent lífrænt kaffi í hylki sem búið til úr plöntutrefjum og því niðurbrjótanlegt í náttúrunni. Sjöstrand hefur hannað og þróað kaffivél í klassískri sænskri hönnun, úr ryðfríu stáli. Gæðin eru mikil og í fullu samræmi við okkar metnað þegar kemur að umhverfisvernd og sjálfbærni. Vélin ásamt náttúruvænum hylkjum skapa þessa hugsjón sem fyrirtækið byggir á.
Einnig bjóðum við upp á lífrænar baðvörur frá Sóley. Vörurnar frá Sóley eru framleiddar á Íslandi með fersku íslensku vatni, villtum íslenskum jurtum og vandlega völdum lífrænum ilmkjarna olíum. Sóley notar aðeins hráefni sem samþykkt eru af Ecocert.
Eitt það mikilvægasta við hótelgistingu er góður svefn og því kusum við Jensen rúmin í öll herbergin. Jensen rúmin eru gæðavottuð eftir alþjóðlegum stöðlum og bera einnig Svansmerkið, en strangar kröfur þess tryggja að Svansmerkt vara er betri fyrir umhverfið og heilsuna. Jensen hefur hlotið verðlaun frá norska hönnunarráðinu fyrir þægindi, framleiðslu og góða hönnun.
Sængurfötin er frá Geysi verslun og sængurnar eru sérvaldar ofnæmisprófaðar dúnsængur.
Við erum með hágæða LG sjónvörp með gervihnetti þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi. Hægt er að tengja sig í gegnum bluetooth við sjónvarpið og nota það sem góðan hátalara.
Öll herbergin eru reyk og vapelaus. Við bjóðum upp á þvottaþjónustu og vakningaþjónustu. Einnig er hægt að óska þess að vera látinn vita þegar norðurljósin koma og dansa á himnunum. Boðið er upp á herbergjaþjónustu frá Geysir veitingahúsi, fyrir þá sem vilja njóta herbergisins í botn með dásamlegum veitingum. Möguleiki er að panta vínflösku, íslensk blóm eða fallega blómavendi, sætan bakka eða aðrar veitingar upp á herbergið.
Þess má geta að það eru fjórir veitingastaðir á Geysi og verslanirnar Geysir og Hekla. VIð erum staðsett í útivistarparadís þar sem úrvalið af afþreyingu er endalaust: sleðaferðir á Langjökli, heimsókn í Friðheima og Efstadal, ferðir á Hvítá, göngur í Haukadalsskógi, Fontana og Secret Lagoon, hestaleigur og Slakki svo að fátt eitt sé nefnt.
Veitingasalir eru staðsettir á 1. og 2. hæð byggingarinnar og umlykja útveggi gamla íþróttaskólans sem fær nú nýtt hlutverk. Möguleiki er að opna veitingasalina út í skjólgóðan hótelgarðinn á góðviðrisdögum. Frá 3. hæð er aðgengi út á þakverönd þar sem hægt er að njóta veitinga og útsýnis til allra átta. Á hótelinu eru þrír ráðstefnusalir sem henta fyrir allar stærðir af ráðstefnum.
Landslagið á svæðinu er áhugavert og fjölbreytt, bæði í landmótun og gróðurvali. Góðar göngutengingar eru til allra átta og hönnun lóðar býður uppá að vegfarendur staldri við á leið sinni um svæðið. Mótun landslags myndar notaleg útisvæði sem snúa vel við sól og nýtast vel til afslöppunar á góðviðrisdögum.